|
07.03.2006 23:00:48 / sardinan
Þessi öryggiskóði sem settur var á kommentin setti punktinn yfir
i-ið. Ég er farin yfir á http://www.123.is/sardinan
»
07.03.2006 22:42:09 / sardinan
»
07.03.2006 21:20:30 / sardinan
Og afhverju er ég hetja? Það er nú bara af því að ég get vaxað á
mér fótleggina, handakrikann og bikinílínuna aaaalein heima í
stofu. Að vísu horfa börnin á mig rífa óæskilegan hárvöxt af
fótleggjum með skelfingarblik í augum. Og svo þegar ég rek upp
sársaukaöskur, þá spyrja þau því ég sé að þessu ef þetta er svona
vont. Ég er auðvitað búin að fræða þau um það að þegar maður er
kona þá þarf maður að leggja ýmislegt á sig. Í þessu tilviki
vaxmeðferð, því ekki vil ég misþyrma vesalings dömurakvélinni minni
á þýskættaða hárvextinum. Jæja þýðir ekki að slugsa svona á netinu,
læra meira! Tata Hetjan
»
05.03.2006 15:36:30 / sardinan

Nú skartar krakkinn sárum um allann kropp. Er að vísu ennþá
lasin og hlaupabólgna augað hennar er ansi ófrýnilegt. Barnið
neitar að láta sjá sig á almannafæri fyrr en sárin verða horfin með
öllu. Jóhann er bólulaus eins og er. Ég nennessuiggi!
»
03.03.2006 13:26:14 / sardinan
Jöbb ég og mútta mín vorum að plana mæðgnaferð til svíaríkis á
haustmánuðum. Erindið er að heimsækja litlu systur sem mun flytja
þangað fyrri part sumars. Að sjálfsögðu fá ættingjar í köben
líka að fá að njóta þess heiðurs að fá okkur í heimsókn. Svei mér
þá ef ég er ekki bara þrælspennt yfir þessu öllu. Jafnvel þó að
mágur minn sé búinn að hóta mér með úldinni dósasíld a la
svíþjóð.
Annars er hlaupabólan í rénun á Írisi. Hún fékk afskaplega slæmt
tilfelli og síðast taldi ég um 100 stykki bara á bakinu hennar. Svo
er hún með eina undir ilinni sem er mjög óþægileg, og andlitið er
eins og pepperonipizza mínus osturinn. Ég fletti upp fötunum á
litla stubb á klukkutíma fresti núna í leit að fyrstu
hlaupabólunum. Ennþá þjáist hann bara af hori niður til afríku og
hósta sem harðasti reykingamaður gæti verið stoltur af.
Later dudes
»
02.03.2006 16:35:25 / sardinan
Vill einhver gefa mér feita spænskusprautu?? Mig langar að læra
tungumálið en hinsvegar þá er ég í tómu tjóni. Ég fékk 5.2 á
netprófi og ég er bara alllls ekki sátt!! Estudio mucho ahora!!
Hasta luego
»
01.03.2006 16:38:56 / sardinan
Hér er bólur á hlaupum um 8 ára kropp. Taldi ein 58 stykki á
bakinu hennar Írisar. Bíð ofsalega spennt eftir því að Jóhann
smitist líka eða þannig.
Baunasúpan heppnaðist svona ljómandi vel gær. Ég og Júlíus sátum
að snæðingi með sælubros á vör á meðan afkvæmin létu andúð sína á
matnum í ljós á ýmsan hátt. Íris bar við sig hlaupabólu og fékk að
sleppa því hún sagðist vera svo lystarlaus, Andrea borðaði jú
súpuna en var ekkert agalega kát á svipinn, Karen reyndi
samningaviðræður til að fá að sleppa við eitt ef hún borðaði smá af
hinu og Jóhann hrækti á borðið því sem upp í hann fór. EF það eru
ekki góð meðmæli þá veit ég ekki hvað.

Hér eru svo bólótta álfadrottningin, Bubbi byggir og góða nornin
í góðum fíling á bolludag.
»
28.02.2006 12:45:43 / sardinan
Kvillinn sem er að valda hita hjá álfadrottningunni þannig að
hún komst ekki út að maska í gær, er kominn í ljós. Stúlkukindin er
komin með hlaupabóluna. Hér er ég að þjást úr samúðarkláða.
»
27.02.2006 23:37:59 / sardinan
Og þá gætu margir spurt sig hvað í ósköpunum það væri.
Maskadagur er sem sagt bolludagur hér á Ísafirði. Ísfirðingar hafa
víst ruglað öskudegi og bolludegi saman fyrir kadrilljón árum og
því klæðast börnin grímubúningum á bolludegi. Svo labba þau hús úr
húsi um kvöldið og syngja fyrir nammi.
Í tilefni af þessum degi var að sjálfsögðu grímuball bæði í
leikskólanum og grunnskólanum. Úr þessu húsi sendi ég í morgun eina
álfadrottningu, einn Bubba byggir, eina góða norn og einn
morgunfúlann ungling.
Álfadrottningin veiktist í kvöld og komst ekki á nammirúntinn,
svo að góða nornin fór og dró björg í bú í staðinn. Kom reyndar
hundsvekkt heim og sagðist hafa fengið miklu minna en í fyrra, því
að dömurnar sem hún var að "maska" með vildu hoppa yfir eitthvað
hús í staðinn fyrir að sníkja. Hún verður nú samt að láta þessi 2
kg duga.
Óver und out
»
25.02.2006 16:31:02 / sardinan
Í dag rann upp fyrsti í bollu. Ég og 3 afkvæmi af 4, örkuðum í
bæinn og verluðum okkur bollur. Reyndar verlsaði ég mér bara bollur
því að afkvæmin voru ekkert voðalega spennt þó að mamman væri það.
Og þar sem að það er glampandi sólskin og yndislegt veður á
Ísafirði í dag, þá settumst við á bekk við kirkjuna, þar sem ég
úðaði í mig bollum og börnin horfðu á. Þóttist vera að bjóða
börnunum með mér þegar einhver labbaði framhjá, bara svona svo að
engin fattaði hversu gráðug ég væri. Örstuttu síðar voru bollurnar
komnar í magann og rjóminn út um allt andlit. Þá reis ég á fætur
með sælubros á andliti, sem að vísu sást ekki fyrir rjóma, og hélt
af stað heim. Á morgun er svo annar í bollu og þá ætla ég nú
að baka þær sjálf.
Sit hér núna og er að horfa á mitt ástkæra fótboltalið tapa
fyrir Blackburn og það er sárt. Samt fallega gert af þeim að taka
eitt tímabil í það að leifa öðrum að vinna. Það á alltaf að vera
góður við minnimáttar.
Bolla bolla
»
22.02.2006 22:06:12 / sardinan
Já ég er steik. Gjörsamlega í steik og dofin í hausnum. Það er
slæmt mál því ég þarf að nota hausinn mjög mikið þessa vikuna. Búin
að prófa að lemja hausnum utan í vegg, en neibb, uppskar ekkert
annað en kúlu og hausverk. Búin að leggja höfuðið í ruslatunnuna og
skella lokinu á, en neibb, þá fóru bara einhverjir fuglar að syngja
og ég varð mjög smeyk því þeir hefðu getað verið með fuglaflensuna.
Búin að prófa að drekka líter af tabasco sósu en neibb þá steikti
ég í mér tunguna ofan á allt hitt.
Kann einhver að afsteikja haus?!?
»
20.02.2006 20:14:59 / sardinan
»
20.02.2006 12:55:09 / sardinan
Er að fara í munnlegt próf í spænsku á fimmtudaginn og dauðkvíði
fyrir. Ekki nóg með að að ég sé pínulítil mannafæla, þá er ég líka
með talaviðókunnugtfólkísímanum fóbíu. Svo er ég náttúrulega alls
ekki búin að vera dugleg að læra tungumálið heldur.
Hlýt að geta lært nokkrar málfræðireglur og sagnir fyrir
fimmtudaginn
Hasta la vista
»
19.02.2006 20:35:10 / sardinan
Mikið afskaplega er ég ánægð með fréttastofu NFS. Þeir sem ekki
vita um hvað málið snýst. Þá voru fréttamenn kompáss að gabba menn
sem sækja í unglings stúlkur. Það var sett inn auglýsing á
stefnumótasíðu og innan 2 sólarhringa var þessi "13 ára stúlka"
búin að fá yfir 80 skilaboð.
Hún spjallaði við þá á msn og í síma og þessir menn voru sko meira
en til í að hitta hana, þrátt fyrir að hún væri svona ung og þeir
alveg upp í fimmtugir.
Svo mættu þessir gaurar á fundarstað þar sem þeirra beið fréttamenn
kompás.
Þeir eru reyndar allir blörraðir, en engu að síður þá hlýtur þetta
að hafa þau áhrif að þessir menn haldi höndum að sér á netinu, að
einhverju leiti allavega.
Mikið er þessi veröld sjúk. Og mikið er þetta skelfilega
algengt.
Ég er reið og ég er sorgmædd.
»
18.02.2006 12:19:19 / sardinan
eru ekki einir af vöggugjöfum mínum. Ekki nóg að söngröddin sé
miður falleg, þá er ég arfa lélegur söngvari.
Daginn sem ég uppgötvaði að líklega væri ég ekki góður söngvari,
var þegar Andrea var pínu lítil. Ég eins og góðum mæðrum sæmir,
ætlaði að syngja vögguvísu fyrir dóttur mína. Dóttirin fór
hinsvegar að gráta þegar ég hóf sönginn. Ég huggaði hana og ákvað
svo að reyna aftur. En nei barnið fór að hágráta. Bragð er að þegar
barnið finnur ekki satt?
Einhverntímann hef ég nú sungið svo að Julio minn hafi heyrt. Þá fæ
ég alltaf að heyra "nei reyndu að syngja eðlilega, ekki fíflast" og
ég svara þá alltaf "en ég er ekki að fíflast!"
og þá kemur til baka "nei láttu ekki svona!"
Ég sem sagt syng eins og manneskja sem getur sungið en er að
fíflast og græti ungabörn um leið.
Það er kannski talent út af fyrir sig??
Adiós
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|